Strætó, innanbæjarakstur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 273
26. apríl, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skýrsla starfshóps um innanbæjarakstur. Bæjarráð vísaði skýrslunni m.a. til umsagnar skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarsvið tekur undir þær áherslur sem settar eru fram í skýrslunni einkum hvað varðar mikilvægi þess að Hafnarfjarðarbær móti sér heildstæða samgöngustefnu. Þar verði lögð áhersla á að veita góða þjónustu við börn og unglinga sem sækja skóla og frístundastarf og um leið verði vistvænar áherslur hafðar að leiðarljósi við gerð áætlunarinnar. Í þessu sambandi er ljóst að endurskoða þarf leiðarkerfi Strætó BS.