Norðurhella 10, byggingarstig og notkun.
Norðurhella 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 253
22. júní, 2010
Annað
‹ 26
27
Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 24.03.2010 eigendum skylt að sækja um fokheldisúttekt innan tveggja vikna. Yrði það ekki gert yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 09.06.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarndi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að sækja um fokheldisúttekt innan tveggja vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

  Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að sækja um fokheldisúttekt innan tveggja vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204723 → skrá.is
Hnitnúmer: 10108596