Lánsfjárheimildir bæjarsjóðs 2010
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3257
18. mars, 2010
Annað
Fyrirspurn
Fjármálastjóri gerði grein fyrir málinu. Lagður fram lánasamingur við Lánasjóð sveitarfélaga vegna endurfjármögnunar.
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 500.000.000 kr. til 14 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að endurfjármagna afborgun af skammtímaláni nr. 0806019 hjá sjóðnum, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.   Jafnframt er bæjarstjóra Lúðvík Geirssyni kt. 210459-3839, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari. "