Lánsfjárheimildir bæjarsjóðs 2010
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3273
4. nóvember, 2010
Annað
Fyrirspurn
Farið yfir stöðuna varðandi endurfjármögnun lána. Fjármálastjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Svar

Bæjarráð samþykkir að vinna eftir fyrirliggjandi endurfjármögnunaráætlun dags. 12. október 2010. Jafnframt samþykkir bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 400.000.000 kr. til 15 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að greiða upp erlent lán frá Bayerische Landesbank að fjárhæð 4,5 milljónir Evra en Hafnarfjarðarhöfn tók lánið á sínum tíma til að fjármagna hafnarframkvæmdir, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Guðmundi Rúnari Árnasyni, kt. 010358-4779 , veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar  að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.“