Steinhella 10, byggingarstig og notkun
Steinhella 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 263
30. nóvember, 2010
Annað
‹ 14
15
Fyrirspurn
Steinhella 10, er á bst. 4 og mst. 8, en er í fullri notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Bréf barst 06.04.10 með beiðni um frest til að vinna í málinu. Síðan hefur ekkert gerst. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 24.11.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að sækja um lokaúttekt innan þriggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að sækja um lokaúttekt innan þriggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.