Blómvellir 14, slæmur frágangur
Blómvellir 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 370
27. júlí, 2011
Annað
Fyrirspurn
Snæbjörn Blöndal Blómvöllum 17 kvartar yfir frágangi á húsi og lóð Blómvalla 14, sem er timburhús sem reist var fyrir nokkrum árum, en aldrei klárað, t.d. ekki glerjað o.þ.h. Húsið og lóðin eru í dag notuð sem geymsla með tilheyrandi óþrifnaði. Skoðunarmaður skiuplags- og byggingarsviðs hefur staðfest að svo sé. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 10.03.10 eiganda skylt að ganga frá húsinu á viðunandi hátt í samræmi við grein 67.1 í byggingarreglugerð innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57.grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á fundi skipulags- og byggingarráðs sem samþykkti eftirfarandi 21.09.10: "Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda skylt að ganga frá húsinu á viðunandi hátt í samræmi við grein 67.1 í byggingarreglugerð innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997." Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Eigandi mætti í viðtal 29.12.10 og lofaði tiltekt á lóðinni, en enn hefur ekkert gerst í þá átt.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir á eiganda í samræmi við mannvirkjalög, 2. mgr. 56. greinar, kr. 20 þúsund á dag frá og með 1. september 2011 verði ekki brugðist við erindinu fyrir þann tíma.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 192363 → skrá.is
Hnitnúmer: 10066981