Fasteignaskattur 2010, styrkir til félagasamtaka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3259
15. apríl, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju. Lagður fram nánar útfylltur listi yfir styrkbeiðnir.
Svar

Bæjarráð samþykkir að veita félagasamtökum skv. framlögðum lista styrk sem nemur fjárhæð fasteignaskatts á árinu 2010, samtals kr. 24.521.324 Bæjarráð samþykkir jafnframt að fela stjórnsýslu- og fjármálasviði að afgreiða sambærilegar umsóknir sem kunna að berast síðar. Jafnframt er óskað eftir nánari gögnum vegna umsóknar Góða hirðisins.