KFUM og K í Kaldárseli, endurbygging Sumarbúða
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 245
16. febrúar, 2010
Annað
Fyrirspurn
Stjórn sumarbúða KFUM og K í Kaldárseli óskar með bréfi dags. 02.02.2010 eftir umsögn skipulags- og byggingarsviðs eða skipulags- og byggingarráðs um endurbyggingu hluta sumarbúða við Kaldársel, sem skemmdust í óveðri. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 10.02.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs. Lagðir fram minnispunktar sviðsstjóra af fundi með fulltrúm KFUM og K.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og felur skipulags- og byggingarsviði að vinna áfram að því í samráði við stjórn sumarbúðanna.