Drangahraun 14, byggingarstig og notkun
Drangahraun 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 403
28. mars, 2012
Annað
Fyrirspurn
Fokheldi er komið á húsið, en það vantar enn lokaúttekt og svo virðist sem húsið sé í notkun.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar 26.04.2012 kl. 15:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinni hann ekki erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu. Bent er á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra".

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120298 → skrá.is
Hnitnúmer: 10083907