Hávaðakort samkv. tilskipun EU 2002/49/EC og skrá yfir stóra vegi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 323
28. maí, 2013
Annað
Fyrirspurn
Gerð grein fyrir kortlagningu hávaða og gerð grein fyrir drögum að aðgerðaráætlun skv. 11. grein reglugerðar nr. 1000/2005. Bergþóra Kristinsdóttir fulltrúi Eflu verkfræðistofu mætti á fundinn og kynnti.
Svar

Skipulags- og byggingarráð þakkar fyrir kynninguna. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að aðgerðaráætlun verði auglýst til kynningar.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að auglýsa til kynningar aðgerðaráætlun skv. 11. gr. reglugerðar nr. 1000/2005."