Fundargerðir 2010, til kynningar í bæjarstjórn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1643
28. september, 2010
Annað
‹ 2
3
Fyrirspurn
Fundargerð fræðsluráðs frá 20.sept. sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 22.sept.sl. a. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 15.sept. sl. Fundargerð framkvæmdaráðs frá 22.sept.sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 21.sept. sl. a. Fundargerðir umhverfisnefndar/Staðardagskrá 21 frá 10.ágúst, 1. og 15.sept. sl. Fundargerð bæjarráðs frá 23.sept.sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. sept. sl. b. Fundargerð lýðræðis- og stjórnsýslunefndar frá 7.sept. sl. c. Fundargerð Suðurlinda ohf. frá 25.ágúst sl.
Svar

Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs undir 12. lið - Árshlutauppgjör 2010 - í fundargerð bæjarráðs frá 23. september sl. Valdimar Svavarsson tók til máls undir sama lið. Þá Helga Ingólfsdóttir, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Eyjólfur Sæmundsson undir sama lið. Valdimar Svavarsson kom að andsvari. Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari. Geir Jónsson tók til máls undir 12. og 13. lið - Eftirlitsnefnd niðurstaða ársreiknings Hafnarfjarðarkaupstaðar 2009 - í fundargerð bæjarráðs frá 23. september sl. Lúðvík Geirsson tók til máls undir 12. lið í fundargerð bæjarráðs frá 23. september sl. Geir Jónsson kom að andsvari. Lúðvík Geirsson svaraði andsvari. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls undir fyrrnefndum 12. lið í fundargerð bæjarráðs og 4. lið - Orkuveita Reykjavíkur gjaldskrárhækkanir - í sömu í fundargerð. Rósa Guðbjartsdóttir kvaddi sér hljóðs undir 4. lið - Atvinnuástandið - og 5. lið - Atvinnuleysistölur, Hafnarfirði - í fundargerð fjölskylduráðs frá 22. september sl. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari. Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, tók til máls undir 4. og 5. lið í fundargerð fjölskylduráðs frá 22. september sl. og 12. lið í fundargerð bæjarráðs frá 23. september sl. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari.