Tjarnarvellir 2, breyting á deiliskipulagi
Tjarnarvellir 2A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 254
3. ágúst, 2010
Annað
Fyrirspurn
Manning ehf sækir þann 05.01.2010 um leyfi til að breyta deiliskipulagi á Tjarnarvöllum 2 skv. uppdrætti arkitektur.is dags. 13. apríl 2010. Erindið var auglýst skv. 2. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga frá 28.04.2010 - 27.05.2010 með athugasemdafresti til 09.06.2010. Ein athugasemd barst. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 09.06.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að svari við innkominni athugasemd.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulags- og byggingarsviðs, samþykkir tillöguna og að málinu verði lokið samkvæmt 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Tjarnarvelli 2, dags. 13. apríl 2010 og að málinu verði lokið samkvæmt 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 218408 → skrá.is
Hnitnúmer: 10125447