Melabraut 25 frágangur á lóð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 256
7. september, 2010
Annað
Fyrirspurn
Vorið 2009 var sent bréf til húseigenda í iðnaðarhverfinu Hvaleyrarholti þar sem þess var farið á leit að tekið yrði til á lóðum, sótt um leyfi fyrir gáma o.fl. Við skoðun hefur komið í ljós að ekki hefur verið brugðist við þessu að Melabraut 25. Skipulags-og byggingarfulltrúi gerði 25.11.2009 húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til Skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði málinu 20.04.2010 til sikpulags- og byggingarráðs, sem gerði 27.04.10 húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Sækja bæri um stöðuleyfi fyrir gáma á lóðinni. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu og ekkert heyrst frá eiganda í þá 9 mánuði síðan erindið var fyrst sent honum, og í ljós hefur komið að umfangsmikil járnahrúga sem að líkindum tilheyrir húsinu hefur verið sett út á götuna.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á eiganda Melabrautar 25, kr. 20 þús.kr. á dag frá og með 1. nóvember 2010 verði ekki brugðist við erindinu fyrir þann tíma."