Hvammar, endurgert deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 250
27. apríl, 2010
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju drög skipulags- og byggingarsviðs að endurgerðu deiliskipulagi fyrir Hvamma. Ekki hefur verið byggt í samræmi við gildandi deiliskipulag frá árinu 1976, breytt 1979, og verður jafnframt að fella það deiliskipulag úr gildi. Lagðar fram athugasemdir sem bárust eftir forstigskynningarfund sem haldinn var 12.04.2010 og ný tillaga dags. 20.04.2010, þar sem brugðist er við athugasemdum.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að  tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hvamma dags. 20.04.2010 verði auglýst skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.