Burknavellir 1 A,B,C, lokaúttekt
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 245
16. febrúar, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju erindi húsfélagsins að Burknavöllum 1 A, B og C dags. 03.10.2009 þar sem þess var farið á leit að skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 07.10.2009 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu. Skipulags- og byggignrfulltrúi gerði byggingarstjóra 01.12.2010 skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við þessu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði málinu til skipulags- og byggingarráðs sem gerði 01.12.2009 byggingarstjóra hússins skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu innan fjögurra vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við þessu mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997." Lagður fram tölvupóstur byggingarstjóra dags. 14.12.2009 og minnispunktar frá samtali við formann húsfélagsins dags. 21.01.2010.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að að áður boðaðar dagsektir á hendur byggingarstjóra hússins verði kr. 20.000/dag, og verði innheimtar frá og með 15. mars 2010, hafi ekki verið brugðist við erindinu fyrir þann tíma."