Burknavellir 1 A,B,C, lokaúttekt
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1632
10. mars, 2010
Annað
Fyrirspurn
24.liður úr fundargerð SBH frá 16.febr. sl. Frestað á fundi bæjarstjórnar 24.febr. sl. 24.liður úr fundargerð SBH frá 16.febr. sl. Tekið fyrir að nýju erindi húsfélagsins að Burknavöllum 1 A, B og C dags. 03.10.2009 þar sem þess var farið á leit að skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 07.10.2009 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði byggingarstjóra 01.12.2009 skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við þessu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði málinu til skipulags- og byggingarráðs sem gerði 01.12.2009 byggingarstjóra hússins skylt að sækja um lokaúttekt á húsinu innan fjögurra vikna í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við þessu mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997." Lagður fram tölvupóstur byggingarstjóra dags. 14.12.2009 og minnispunktar frá samtali við formann húsfélagsins dags. 21.01.2010.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að áður boðaðar dagsektir á hendur byggingarstjóra hússins verði kr. 20.000/dag, og verði innheimtar frá og með 15. mars 2010, hafi ekki verið brugðist við erindinu fyrir þann tíma."
Jón Páll Hallgrímsson tók til máls. Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari. Jón Páll Hallgrímsson svaraði andsvari. Gísli Ó. Valdimarsson svaraði andsvari. Haraldur Þór Ólason tók til máls. Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari. Haraldur Þór Ólason svaraði andsvari. Gunnar Svavarsson tók til máls. Haraldur Þór Ólason kom að andsvari. Gunnar Svavarsson svaraði andsvari. Jón Páll Hallgrímsson kom að andsvari við fyrri ræðu Gunnars Svavarssonar. Gunnar Svavarsson svaraði andsvari. Jón Páll Hallgrímsson kom að andsvari öðru sinni. Gunnar Svavarsson svaraði andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls. Gert stutt fundarhlé. Lúðvík Geirsson tók til máls og lagði fram frestunartillögu. Gunnar Svavarsson kom að andsvari. Jón Páll Hallgrímsson tók til máls. Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti frestunartillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Haraldur Þór Ólason tók til máls. Gert stutt fundarhlé. Haraldur Þór Ólason tók til máls.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu sem skipulags- og byggingarráð vísaði til bæjarstjórnar á fundi sínum 16. febrúar sl. með 7 atkvæðum. 4 sátu hjá.   Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að svohljóðandi bókun: Bæjarfulltrúi Vinstri grænna er sammála því að beita dagsektum þegar ekki er farið að skipulags- og byggingarlögum og byggingarreglugerð. Hins vegar er mikilvægt að vinnubrögðin við beitingu dagsekta séu skýrar og ávallt þær sömu. Sama ferli sé ávallt viðhaft og ákvörðun um upphæðir dagsekta séu byggðar á samræmdum útreikningum. Þar sem verið er að vinna að samantekt varðandi þessi málefni hefði undirritaðri þótt eðlilegt að afgreiðsla málsins hefði verið tekin fyrir þegar þeirri samantekt væri lokið. Þar af leiðandi situr bæjarfulltrúi Vinstri grænna hjá við afgreiðslu málsins.   Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign)   Eyjólfur Sæmundsson gerði grein fyrir atkvæði sínu.