Ölduslóð 12, fyrirspurn
Ölduslóð 12
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 251
11. maí, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn Gísla G Gunnarssonar byggingarfræðings f.h. eigenda hússins Ölduslóð 12 varðandi hækkun þaks hússins. Skipulags- og byggingarráð synjaði fyrirspurninni eins og hún lá fyrir. Lagðar fram nýjar teikningar Gísla Gunnarssonar dags. 21.01.2010. Skipulags- og byggingarráð vísaði 13.02.2010 til fyrri afgreiðslu frá 3. nóvember 2009 og fól skipulags- og byggingarsviði að fara betur yfir fyrirspurnina. Skipulags- og byggingarsvið gerir grein fyrir því hvernig innrétta megi nýtanlegt rými 40 fm í þakrými með hækkun þaks, en það byggingarmagn er í samræmi við leyfilega viðbót samkvæmt samþykktu deiliskipulagi svæðisins. Lagðar fram ljósmyndir af húsum í nágrenninu með svipaðri útfærslu.
Svar

Fjórir fulltrúar Skipulags- og byggingarráðs taka undir niðurstöðu skipulags- og byggingarsviðs.   Fulltrúi Sjálfstæðisflokks Rósa Guðbjartsdóttir situr hjá við afgreiðslu þessarar fyrirspurnar.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 123059 → skrá.is
Hnitnúmer: 10028449