Íbúaþing 2010
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 235
6. október, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekin til umræðu tillaga umhverfisnefndar/Sd 21 frá fundi 30. september s.l. um undirbúning að íbúaþingi. Umhverfisnefnd/sd 21 fer þess á leit við Skipulags-og byggingarráð að hafist verði handa við undirbúning á íbúaþingi með áherslu á rammaskipulag upplandsins, þróunaráætlun miðbæjarins og hugmyndir hafnarstjórnar að nýrri höfn vestan Straumsvíkur.
Svar

Skipulags- og byggingarráð leggur til að stofnaður verði starfshópur með fjórum fulltrúum úr ráðinu og nefndinni til viðbótar við starfandi starfshóp embættismanna.  Rósa Guðbjartsdóttir óskar eftir að áætlanir um útfærslu framkvæmdar og kostnað tengt íbúaþingi liggi fyrir á næsta fundi.  Frekari umræðu frestað til næsta fundar.