Aðalskipulag, Suðurhöfn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 243
19. janúar, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs, dags. 1. október 2009, um breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar hvað varðar Suðurhöfn. Tillagan var auglýst 12.11.2009 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Athugasemdafresti lauk 28.12.2009. Athugasemd barst. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að svari við innkominni athugasemd.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir svar skipulags- og byggingarsviðs að sínu, samþykkir aðalskipulagsbreytinguna og að málinu verði lokið skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnafjarðar 2005 - 2025, Suðurhöfn, dags. 01.10.2009 og að málinu verði lokið skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."