Aðalskipulag, Suðurhöfn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1621
13. október, 2009
Annað
Fyrirspurn
18. liður úr fundargerð SBH frá 6.okt. sl. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs, dags. 1. október 2009, um breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar hvað varðar Suðurhöfn.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að vísa aðalskipulagstillögunni í auglýsingu skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Suðurhöfn, dags. 1. október 2009, verði auglýst samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br."
Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls.
Svar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.