Aðalskipulag Suðurgata - Hamarsbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1645
27. október, 2010
Annað
Fyrirspurn
8.liður úr fundargerð SBH frá 19.okt. sl. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar lóð St. Jósepsspítala innan deiliskipulagssvæðis Suðurgata - Hamarsbraut, dags. 16.09.2009. Lagt er til að landnotkun á lóðunum suðurgata 42 - 44 verði breytt úr stofnanasvæði í blandaða byggð íbúðarsvæða og stofnanasvæða. Tillagan var auglýst skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Athugasemdatíma er lokið, engar athugasemdir bárust. Tillagan var kynnt á almennum fundi samhliða deiliskipulagi fyrir svæðið.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir aðalskipulagsbreytinguna og að málinu verði lokið í samræmi við 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar lóð St. Jósepsspítala við Suðurgötu og að málinu verði lokið í samræmi við 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Helga Ingólfsdóttir tók sæti að nýju á fundinum.   Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.