Aðalskipulag Suðurgata - Hamarsbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1620
29. september, 2009
Annað
Fyrirspurn
6. liður úr fundargerð SBH 22. sept. s.l. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar lóð St. Jósepsspítala innan deiliskipulagssvæðis Suðurgata - Hamarsbraut, dags. 16.09.2009. Lagt er til að landnotkun á lóðunum Suðurgata 42 - 44 verði breyt úr stofnanasvæði í blandaða byggð íbúðarsvæða og stofnanasvæða.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að aðalskipulagstillagan með áorðnum breytingum í texta verði auglýst skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að aðalskipulagi Suðurgötu - Hamarsbraut dags. 18.09. 2009 verði auglýst skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls, þá Haraldur Þór Ólason,  Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu skipulags- og byggingarráðs með 11 atkvæðum.