Krýsuvík, kofar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 248
30. mars, 2010
Annað
‹ 19
20
Fyrirspurn
Borist hefur með tölvupósti dags. 07.09.2009 fyrirspurn um hvaða leyfi hafa verið gefin fyrir byggingum á svæði því sem hestamenn hafa við s-v hluta Kleifarvatns. Athugun skipulags- og byggingarsviðs hefur leitt í ljós að engin byggingarleyfi né stöðuleyfi eru fyrir umræddum byggingum. Á sínum tíma voru byggðar þarna hnakkageymslur, sem Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005 - 2025 Krýsuvík, gerir ráð fyrir að verði fjarlægðar í áföngum, en nú er risin þarna mun umfangsmeiri byggð húsa, sum þeirra ný, sem skipulags- og byggingarfulltrúi hefur farið fram á að verði fjarlægð samkvæmt 56. grein skipulags- og byggingarlaga: "Ef byggingarframkvæmd, sem fellur undir IV. kafla laga þessara, er hafin án þess að leyfi sé fengið fyrir henni og hún brýtur í bága við skipulag eða framkvæmd er hafin með byggingarleyfi sem brýtur í bága við skipulag ber byggingarfulltrúa að stöðva framkvæmdir tafarlaust og síðan skal hin ólöglega bygging, eða byggingarhluti, fjarlægð, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt. - Hafi mannvirki, sem fellur undir IV. kafla laga þessara, verið reist án samþykkis sveitarstjórnar og hún látið hjá líða að fjarlægja það innan sex mánaða frá því að henni var kunnugt um málið skal Skipulagsstofnun láta fjarlægja mannvirkið á kostnað sveitarfélags." - Borist hefur umsókn frá Pálmari Harðarsyni dags. 02.11.2009, þar kemur fram að hann hafi fjarlægt þrjú hús af svæðinu fyrir Krýsuvíkurnefnd Sörla, og sækir hann í staðinn um stöðuleyfi fyrir eitt hús. Skipulags- og byggingarfulltrúi synjaði þeirri umsókn, þar sem ekki er lagaheimild fyrir slíku stöðuleyfi og það samræmist ekki skipulagi. - Skipulags- og byggingarfulltrúi óskaði 11.11.2009 eftir skýringum á umræddri byggð húsa frá Pálmari Harðarsyni, Krýsuvíkurnefnd Sörla og öðrum hugsanlegum eigendum innan fjögurra vikna, m.a. hvenær og á hvaða forsendum húsin hafa risið, og vísar síðan erindinu til Skipulags- og byggingarráðs. Einnig var óskað eftir áætlun um það hvenær húsin verði fjarlægð til samræmis við áðurnefnt ákvæði í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar Krýsuvík 2005 - 2025. Svör bárust ekki. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulags- og byggingarráðs sem bókaði eftirfarandi: “Skipulags- og byggingarráð óskar eftir skýringum á umræddri byggð húsa frá Pálmari Harðarsyni, Krýsuvíkurnefnd Sörla og öðrum hugsanlegum eigendum innan fjögurra vikna, m.a. hvenær og á hvaða forsendum húsin hafa risið. Einnig er óskað eftir áætlun um það hvenær húsin verði fjarlægð til samræmis við áðurnefnt ákvæði í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar Krýsuvík 2005 - 2025. Berist ekki umbeðnar skýringar innan tilskilins tíma mun skipulags- og byggingarráð fjalla um málið að nýju og ákveða viðeigandi ráðstafanir.” Skýringar hafa ekki borist. Erindið var til umræðu á afgreiðslufundi skipulags- og byggignarfulltrúa 10.03.2010 sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: “Þar sem ekki hefur verið brugðist við tilmælum Skipulags- og byggingarráðs gerir ráðið eigendum kofanna skylt að fjarlægja þá innan tveggja mánaða til samræmis við 1. mgr. 65. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein sömu laga.” Lagt fram bréf Björns Bjarnasonar f.h. Hestamannafélagsins Sörla dags. 11.03.2010 þar sem óskað er eftir viðræðum um skipulag á svæði félagsins í Krýsuvík (væntanlega beitarhólfi)með það að markmiði að koma upp félagshúsi sem leysi af hólmi kofa og aðrar byggignar á svæðinu. Enn fremur er farið fram á að kofar þeir sem eru fyrir á svæðinu, og hafa verið byggðir frá því upp úr 1950 fái að standa þar til nýtt aðalskipulag liggi fyrir. Áður lagðir fram minnispunktar sviðsstjóra. Skipulags- og byggingarsvið gerir grein fyrir viðræðum við forsvarsmenn Sörla.
Svar

Lagt fram.