Íshella 7, byggingarstig og notkun
Íshella 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 235
6. október, 2009
Annað
Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Samkvæmt skilmálum átti húsið að skilast fokhelt 15.3.2007 og fullbúið 15.8.2007. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 02.09.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 23.09.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Berist þær ekki verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Berist þær ekki verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 189369 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075074