Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1623
Annað
Fyrirspurn
19. liður úr fundargerð SBH frá 3.nóv. sl. Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Samkvæmt skilmálum átti húsið að skilast fokhelt 15.3.2007 og fullbúið 15.8.2007. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 02.09.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulags- og byggignarráðs, sem gerði 06.10.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Berist þær ekki verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að áður boðaðar dagsektir á húseiganda og byggingarstjóra verði kr. 20.000/dag á hvorn þeirra, og verði innheimtar frá og með 1. desember 2009, hafi upplýsingar ekki borist fyrir þann tíma." Þar sem um er að ræða brot á 48. grein byggingarreglugerðar samþykkir skipulags- og byggingarráð jafnframt að byggingarstjóra verði veitt áminning við ítrekað brot í samræmi við 59. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Svar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 189369 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075074
Síðasta markaðsverð
109.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 900 m² · 29.07.2010
Kaupskrá 2 eignir
109.000.000 kr. 29.07.2010
Atvinnuhúsnæði · 900 m² · HMS
133.547.000 kr. 20.12.2007
Atvinnuhúsnæði · 1059 m² · HMS
Deiliskipulag
Hellnahraun, 1. áfangi
Samþykkt 16.05.2000 · Deiliskipulag. Nýtt DSK