Hverfisgata-Mjósund-Austurgata-Gunnarssund deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 267
1. febrúar, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Mjósundi, Austurgötu, Gunnarssundi og efri lóðamörkum húsa við Hverfisgötu 31-49. Skipulags- og byggingarsvið gerði áður grein fyrir athugun á aðkomu að vitanum bak við lóðina Hverfisgata 41 og fundi með íbúum umhverfis vitann 08.04.2010. Áður lögð fram athugun skipulags- og byggingarsviðs á nýtingarmöguleikum Hverfisgötu 41. Á síðasta fundi var afgreiðslu frestað til þessa fundar.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst samkvæmt 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Mjósundi, Austurgötu, Gunnarssundi og efri lóðamörkum húsa við Hverfisgötu 31-49 verði auglýstur samkvæmt 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. "