Steinhella 5, ólögleg búseta
Steinhella 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 231
11. ágúst, 2009
Annað
Fyrirspurn
Bréf barst frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins varðandi ólöglega búsetu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 15.07.2009 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um viðeigandi aðgerðir skv. skipulags- og byggingarlögum. Svar hefur ekki borist. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 05.08.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Berist þær ekki verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Berist þær ekki verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.