Hlutafélag vegna Nýsissamninga, GN-eignir ehf.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3239
24. september, 2009
Annað
Fyrirspurn
Fjármálastjóri gerði grein fyrir framgangi kaupa GN-eigna ehf á eigum Nýsis.
Svar

Í samræmi við bókun bæjarráðs frá 9. júlí 2009 leggur bæjarráð til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn  Hafnarfjarðar samþykkir að fela stjórn GN eigna ehf. að ganga frá og undirrita kaupsamninga, lánasamninga og tryggingabréf vegna kaupa félagsins á eignunum Lækjarskóla, íþróttahúsi Lækjarskóla og leikskólanum Álfasteini samtals að fjárhæð 3,8 milljarð króna með veðheimild í eignunum.     Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn:"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að veita sjálfskuldaábyrgð Hafnarfjarðarkaupstaðar á  lánasamninga NBI hf.  (Landsbanka Íslands) vegna kaupa á eignunum Lækjarskóla, íþróttahúsi Lækjarskóla og leikskólanum Álfasteini samtals 3,8 milljarðar króna. Samþykkt er að veita Lúðvíki Geirssyni, kt. 210459-3839 , fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar  að undirrita ofangreindra lánasamninga vegna sjálfskuldaábyrgða.