Kríuás 47, ósk um lokaúttekt
Kríuás 47
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1619
15. september, 2009
Annað
Fyrirspurn
11. liður úr fundargerð SBH frá 8. sept. sl. Borist hefur tölvupóstur frá Stefáni Hjaltalín f.h. húsfélagsins að Kríuási 47 dags. 10.06.2009, þar sem óskað er eftir að byggingarfulltrúi krefji byggingarstjóra um lokaúttekt á húsinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi beindi því 24.06.2009 til byggingarstjóra að sækja um lokaúttekt í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Yrði ekki brugðist við því innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um aðgerðir í samræmi við grein 57.1 í skipulags- og byggingarlögum. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 29.07.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs. Skipulags- og byggingarráð samþykkti eftirfarandi 11.08.2009: "Skipulags- og byggingarráð beinir því til byggingarstjóra að sækja um lokaúttekt í samræmi við grein 53.1 í byggingarreglugerð. Verði ekki brugðist við því innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um aðgerðir í samræmi við grein 57.1 í skipulags- og byggingarlögum." Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að áður boðaðar dagsektir á hendur byggingarstjóra hússins verði kr. 20.000/dag, og verði innheimtar frá og með 1. október 2009, hafi ekki verið brugðist við erindinu fyrir þann tíma."
Svar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 187096 → skrá.is
Hnitnúmer: 10070137