Lónsbraut 56, breyting á byggingarleyfi
Lónsbraut 56
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 233
8. september, 2009
Annað
Fyrirspurn
Björn Sigurðsson sækir 12.06.09 um að breyta áður samþykktum teikningum. Gaflar steyptir í fulla hæð samkvæmt teikningum Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 11.06.09. Nýjar teikningar lagðar inn 09.07.09. Skipulags- og byggingarráð taldi 25.08.2009 ekki unnt að verða við erindinu að svo stöddu, þar sem ekki er fyrir hendi frárennsli á svæðinu. Skipulags- og byggingarráð fól jafnframt skipulagssviði að vinna úttekt á vatns- og frárennslismálum á svæðinu og gera tillögu um aðgerðir. Lögð fram samantekt framkvæmdasviðs um vatns- og frárennslismál á svæðinu.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að hefja undirbúning að vinnu við deiliskipulag bátaskýla við Hvaleyrarlón.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121126 → skrá.is
Hnitnúmer: 10033455