Fimleikafélag Hafnarfjarðar í Kaplakrika, rekstrarsamningur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3238
10. september, 2009
Annað
Fyrirspurn
Lagður fram viðauki við fyrirliggjandi rekstrarsamning Fimleikafélags Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbæjar. Íþróttafulltrúi mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Formaður leggur fram eftirfarandi tillögu að afgreiðslu. Bæjarráð staðfestir viðaukasamninginn, með gildistöku frá 1. september. Við endurskoðun á heildarsamningi frá 30.04.2002 á milli Hafnarfjarðarbæjar og Fimleikafélags Hafnarfjarðar um rekstur Íþróttamiðstöðvar FH í Kaplakrika skal fara fram endanlegt uppgjör á viðaukasamningnum, með tilliti til þess hvenær einstakir hlutar þeirra nýframkvæmda sem um ræðir verða teknir í gagnið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir frestun á afgreiðslu málsins.
Svar

Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar.