Suðurgata 38, byggingarleyfi
Suðurgata 38
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 232
25. ágúst, 2009
Annað
Fyrirspurn
Davíð A. Stefánsson sækir um 05.06.09 leyfi til að byggja viðbyggingu við hús, samkvæmt teikningum Kára Eiríkssonar dagss.09.05.09. Umsögn Byggðasafns Hafnarfjarðar dags. 18.6.2009 og Húsafriðunarnefndar dags. 16.6.2009 liggja fyrir. Erindið hefur verið grenndarkynnt, athugasemd barst. Leitað hefur verið álits Brunamálastofnunar, sem telur fjarlægð útveggjarins vera í lagi að efni hans uppfylli kröfur varðandi eldvarnir. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 19.08.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir ekki athugasemd við erindið að uppfylltum kröfum um brunamál og felur skipulags- og byggingarfulltrúa afgreiðslu þess.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122531 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025959