Húsvarðaríbúðir í atvinnuhúsnæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 601
28. júní, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram samþykkt um húsvarðaríbúðir í atvinnuhúsnæði, sem samþykkt var í byggingarnefnd Hafnarfjarðar þann 07.12.1989 og bæjarstjórn 19.12.1989.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að leggja til við bæjarráð:
"Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samþykkir að fella úr gildi samþykkt bæjarstjórnar frá 19.12.1989 um húsvarðaríbúðir í atvinnuhúsnæði."