Norðurbakki 1-3, bílastæði
Norðurbakki 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 229
23. júní, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju bréf frá íbúum Norðurbakka 1 og 3 dags. 01.05.2009 þar sem farið er fram á að bílastæðum við húsin verði fjölgað. Frestað á síðasta fundi. Áður lögð fram umsögn framkvæmdaráðs dags. 13.05.2009. Skipulags- og byggingarráð fól skipulags- og byggingarsviði 09.06.2009 að vinna áfram í málinu.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulags- og byggingarsviðs. Ekki er unnt að koma til móts við óskir íbúa um breytingu skipulags þar sem aðstæður á svæðinu leyfa ekki fjölgun bílastæða ofanjarðar. Því er synjað að breyta skipulaginu við Norðurbakka 1 og 3.  Almar Grímsson tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 200308 → skrá.is
Hnitnúmer: 10027602