Reykjavíkurvegur 76-80, breyting á deiliskipulagi
Reykjavíkurvegur 76
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1613
19. maí, 2009
Annað
Fyrirspurn
9. liður úr fundargerð SBH frá 12. maí sl. Actavis hf leggur fram tillögu um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar skv. uppdr. Úti og inni dags. 20.04.2009. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 06.05.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að senda tillöguna í auglýsingu skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að senda tillögu að deiliskipulagi iðnaðarsvæðis austan Reykjavíkurvegar, Reykjavíkurvegur 76-80 dags. 20.04.2009 í auglýsingu skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls. Bæjarstjórn samþykkti tillögu skipulags- og byggingarráðs samhljóða með 11 atkv.