Dalshraun 15, þinglýstur húsaleigusamningur og skráning á lögheimili
Dalshraun 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 225
28. apríl, 2009
Annað
‹ 17
18
Fyrirspurn
Mjölnir Gunnarsson sækir um húsaleigubætur og skráningu lögheimilis að Dalshrauni 15. Lagður fram þinglýstur húsaleigusamningur fyrir íbúðarhúsnæði í húsinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi benti 01.04.2009 á að ekki er samþykkt íbúð í húsinu, sem er á athafnasvæði. Íbúðin væri því ólögleg og bæri að rýma hana án tafar. Yrrði það ekki gert innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 22.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda skylt að rýma hinar ólögmætu íbúðir í húsinu tafarlaust. Verði það ekki gert innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um dagsektir með tilvísun til 57. greinar skipulags- og byggingarlaga."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda skylt að rýma hinar ólögmætu íbúðir í húsinu tafarlaust. Verði það ekki gert innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um dagsektir með tilvísun til 57. greinar skipulags- og byggingarlaga.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120267 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030053