Hvaleyrarbraut 22, ólöglegar framkvæmdir framhald
Hvaleyrarbraut 22
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3235
13. ágúst, 2009
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram eftirfarandi tillaga til bæjarstjórnar frá fundi skipulags- og byggingarráðs 11.8.sl.: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að áður boðaðar dagsektir vegna ólöglegra framkvæmda og búsetu í húsinu, kr. 50.000/dag, verði innheimtar af nýjum eigendum frá og með 1. september 2009, hafi búsetu ekki verið lokið fyrir þann tíma og réttum reyndarteikningum skilað til byggingarfulltrúa."
Svar

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samþykkir tillögu skipulags- og byggingarráðs.