A Hansen, auglýsingaskilti
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 226
12. maí, 2009
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði með bréfi dags. 17.02.2009 athugasemd við auglýsingaskilti sem staðsett hefur verið við Bæjartorg, nánar tiltekið á landi bæjarins á horni lóðar við Norðurbakka 1-3 án tilskilins leyfis. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekaði 25.03.2009 tilmæli við A. Hansen/Vínhúsið að fjarlægja skiltið. Yrði ekki orðið við þeim tilmælum innan tveggja vikna myndi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um að beitt yrði úrræðum í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði málinu 15.04.2009 til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhafa skylt að fjarlægja skiltið innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu um dagssektir í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhafa skylt að fjarlægja skiltið innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu um dagssektir í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.