Lyngbarð 5 og 7, Móabarð 29, lóðamörk
Lyngbarð 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 232
25. ágúst, 2009
Annað
Fyrirspurn
Valgerður Kristjánsdóttir, Lyngbarði 5 gerir f.h. íbúa að Lyngbarði 5 og 7 athugasemd við að eigandi Móabarðs 29 hafi tekið sér hluta af lóðum þeirra og girt af. Mælingamaður Hafnarfjarðarbæjar hefur mælt lóðamörkin. Vísbendingar eru um fyrirhugaðar framkvæmdir á lóð Lyngbarðs 5. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.02.2009 eiganda Móabarðs 29 skylt að færa girðinguna á réttan stað í samræmi við mælingu mælingamanns Hafnarfjarðarbæjar. Yrði ekki úr bætt innan 4 vikna mun skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagssektir í samræmi við gr. 210.1 í byggingarreglugerð. Lagt fram bréf Önnu Rósu Traustadóttur og Gylfa Sigurðssonar eigenda Móabarðs 29 dags. 15.03.2009 ásamt lóðarleigusamningum fyrir umrædd hús. Skipulags- og byggingarráð óskaði 07.04.2009 eftir upplýsingum frá eigendum Lyngbarðs 5 og 7 um hvaða framkvæmdir eru fyrirhugaðar á lóðunum, og hvernig þau hyggist ganga frá lóðarmörkum. Vísað er til kafla 3 í byggingarreglugerð. Lagt fram bréf Valgerðar Kristjánsdóttur Móabarði 5 og Brynju Baldursdóttur Móabarði 7 dags. 04.05.2009 varðandi frágang á lóðamörkunum. Lagt fram ítrekunarbréf sömu aðila dags. 04.05.2009. Skipulags- og byggingarráð fól skipulags- og byggingarsviði að vinna áfram að málinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði 10.06.2009 eftirfarandi niðurstöðu til staðfestingar skipulags- og byggingarráðs: "Lóðamörk skulu vera samkvæmt lóðasamningum svo sem sýnt er á lóðablaði útgefnu af Hafnarfjarðarbæ 05.2008. Núverandi girðing milli umræddra lóða við Lyngbarð og lóðarinnar við Móabarð skal fjarlægð, og frágangur á lóðum og lóðamörkum skal unninn samkvæmt leiðbeiningum landslagsarkitekts skipulags- og byggingarsviðs í samræmi við kafla 3 í byggingarreglugerð." Frestað á fundi 230. Lóða- og hæðablað hefur verið sent málsaðilum.
Svar

Lóðamörk skulu vera samkvæmt lóðasamningum svo sem sýnt er á lóðablaði útgefnu af Hafnarfjarðarbæ 05.2008. Núverandi girðing milli umræddra lóða við Lyngbarð og lóðarinnar við Móabarð skal fjarlægð, og frágangur á lóðum og lóðamörkum skal unninn samkvæmt leiðbeiningum landslagsarkitekts skipulags- og byggingarsviðs í samræmi við kafla 3 í byggingarreglugerð.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121636 → skrá.is
Hnitnúmer: 10035210