Hörðuvellir/Reykdalsreitur, Ljósatröð, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 222
24. mars, 2009
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi fyrir svæði við Ljósatröð dags. 15.01.2009. Svæðið er innan deiliskipulags fyrir Hörðuvelli - Reykdalsreit, en þessum hluta þess var frestað. Frestað á fundi 220.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að  deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að senda tillögu að deiliskipulagi Hörðuvellir/Reykdalsreitur, Ljósatröð 2 og 4 og Lækjargata 46 dags. 10.03.2009 í auglýsingu skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."