Lánsfjárheimildir bæjarsjóðs 2009
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3217
15. janúar, 2009
Annað
Fyrirspurn
Fjármálastjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir .
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Í samræmi við fjárhagsáætlun 2009 samþykkir bæjarsjórn Hafnarfjarðar hér með að taka lán hjá Nýja Kaupþing banki hf. að fjárhæð 400.000.000 kr. til fimm ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar. Til tryggingar láninu standa Norðurhella 2 að fjárhæð 250.000.000 kr og Hringhella 9 kr. 150.000.000 Lánin eru tekin
til að fjármagna endurgreiðslu lóða. Jafnframt er Lúðvíki Geirssyni, kt. 210459-3839, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánasamninga og veðskuldabréf hjá
Nýja Kaupþing banka hf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari."