Lánsfjárheimildir bæjarsjóðs 2009
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3223
26. mars, 2009
Annað
Fyrirspurn
Fjármálastjóri gerði grein fyrir málinu. Um er að ræða lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga til greiðslu afborgunar á skammtímaláni hjá sjóðnum.
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 500.000.000 kr. til 15 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að greiða afborgun af skammtímaláni nr. 0806019 hjá sjóðnum, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er bæjarstjóra Lúðvík Geirssyni kt. 210459-3839, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar+ að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.   Bæjarráðsmenn Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.