Selvogsgata 1, byggingarleyfi
Selvogsgata 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 245
16. febrúar, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju erindi Bjögvins Þórðarsonar Lex lögmannsstofu f.h. íbúa að Brekkugötu 26 dags. 24.11.2009, þar sem gerð er athugasemd við framkvæmdir við Selvogsgötu 1, þar sem steypt er fyrir glugga í kjallaraíbúð Brekkugötu 1. Gerð er athugasemd við þau gögn sem fylgdu grenndarkynningunni. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 01.12.2009 að leita álits Skipulagsstofnunar varðandi grenndarkynninguna og gerði eiganda Selvogsgötu 1 skylt að stöðva framkvæmdir að hluta þar til það álit lægi fyrir. Í svarbréfi Skipulagsstofnunar dags. 8.12.2009 kemur fram að ekki hafi verið staðið rétt að samþykkt byggingarleyfisins. Skipulags- og byggingarráð gerði 15.12.2009 eiganda Selvogsgötu 1 skylt að stöðva áfram tímabundið framkvæmdir við vegginn að Brekkugötu 26 vegna álits Skipulagsstofnunar og fól skipulags- og byggingarsviði að ræða við aðila og kynna niðurstöðuna. Sviðsstjóri og skrifstofustjóri/lögmaður skipulags- og byggingarsviðs gera grein fyrir viðræðum við málsaðila. Lagt fram bréf Bjögvins Þórðarsonar Lex lögmannsstofu f.h. íbúa að Brekkugötu 26 dags. 09.02.2010, þar sem m.a. er farið fram á að byggingarleyfið verði fellt úr gildi.
Svar

Lagt fram.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122174 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037689