Selvogsgata 1, byggingarleyfi
Selvogsgata 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 253
22. júní, 2010
Annað
Fyrirspurn
Kristín Einarsdóttir leggur fram þann 16.12.2008 umsókn um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðra breytinga, stækkunar á kjallara og stækkunar á 1. hæð samkvæmt teikningum Óskars Ásgeirssonar verkfræðings 190157-3509 hjá Verkís Ármúla 4 Reykjavík. Skráningartafla barst þann 26.01.2009. Erindið var grenndarkynnt skv. 7. mgr. 43. greinar skipulags- og byggingarlaga lokið, engar athugasemdir bárust. Í ljós kom að erindið krafðist breytingar á deiliskipulagi og var byggingarleyfið fellt úr gildi. Lagt fram bréf Guðfinnu Jóh. Guðmundsdóttur hdl f.h. Kristínar önnu Einarsdóttur Selvogsgötu 1, þar sem þess er óskað að sveitarstjórn vinni tillögu að breytingu á deiliskipulagi er heimili uppbyggingu á lóðinni Selvogsgötu 1 í samræmi við þær framkvæmdir sem veittar voru með umræddu byggingarleyfi.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að gera tillögu að deiliskipulagi í samræmi við umræður á fundinum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122174 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037689