Selvogsgata 1, byggingarleyfi
Selvogsgata 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 250
27. apríl, 2010
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf frá Björgvin Þórðarsyni hdl f.h. Jóhanns Inga Sigurðssonar og Tinnu Rósar Guðmundsdóttur Brekkugötu 26 Hafnarfirði, dags. 08.04.2010, vegna framkvæmda við Selvogsgötu 1. Farið er fram á að framkvæmdir sem hafnar voru samkvæmd byggingarleyfi, sem síðar var fellt úr gildi, verði fjarlægðar. Einkum er farið fram á að hraðað verði niðurrifi á steypumótum þeim sem eigandi Selvogsgötu 1 er búinn að staðsetja fyrir kjallaraglugga íbúðar þeirra.
Svar

Skipulags- og byggingarráð fellst á kröfu sem barst með bréfi dags. 08.04.2010, en ef aðilar ná sátt um að nægilegt sé að fjarlægja það sem snýr að Brekkugötu 26 fellst skipulags- og byggingarráð á þá niðurstöðu að svo stöddu. 

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122174 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037689