Vesturgata 18-20, framkvæmdir
Vesturgata 18
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 228
9. júní, 2009
Annað
Fyrirspurn
Geir Garðarsson Vesturbraut 4 gerir athugasemd vegna framkvæmda við Vesturgötu 18-20 sem liggja niðri og girðinga sem reistar voru og eru fallnar niður á köflur og hæðarmunur milli lóða er mikill. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.03.2009 framkvæmdaraðila að Vesturgötu 18-20 skylt að gera grein fyrir áætlun og tímasetningu á frágangi lóðarinnar að Vesturgötu 4a innan tveggja vikna. Ekki hefur verið brugðist við því. Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekaði 15.04.2009 fyrirmæli um áætlun og tímasetningu á frágangi lóðarinnar. Yrði ekki brugðist við því innan tveggja vikna myndi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um að beitt verði dagssektum í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar málinu til Skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: :"Skipulags- og byggingarráð ítrekar fyrirmæli um áætlun og tímasetningu á frágangi lóðarinnar. Verði ekki brugðist við því innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagssektum í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga."
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir fyrirmæli byggingarfulltrúa. Verði ekki brugðist við þeim innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122862 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001618