Suðvesturlínur, raforkuflutningskerfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 229
23. júní, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tvær stjórnsýslukærur hafa borist umhverfisráðuneytinu vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar frá 29. mars sl. um að framkvæmdin Suðvesturlínur skuli ekki metin með öðrum tengdum framkvæmdum. Veittur er frestur til að skila umsögn til 15. júní nk. Skipulags- og byggingarráð fól 09.06.2009 skipulags- og byggingarsviði að skoða hvort eitthvað í kærunum snúi að Hafnarfjarðarbæ.
Svar

Skipulags- og byggingarráð telur ekki ástæðu til að bregðast við erindinu þar sem það snýr eingöngu að ákvörðun Skipulagsstofnunar.