Dalshraun 13, breyting Byggingarleyfi
Dalshraun 13
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 238
17. nóvember, 2009
Annað
‹ 15
16
Fyrirspurn
Húsaleiga ehf sótti 04.09.08 um allsherjar endurnýjun, 40 starfsmannaíbúðir á Dalshrauni 13, samkvæmt teikningum Jóns Hrafns Hlöðversonar dags. 13.08.08. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir nánari gögnum. Lagt var fram bréf Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 12.12.2008, þar sem umsókn um starfsleyfi fyrir stafsmannabústað var synjað. Skipulags- og byggingarráð synjaði erindinu og vakti athygli á umsögn Heilbrigðiseftirlits að óheimilt sé að leigja út íbúðarhúsnæði eða íbúðarherbergi nema húsnæðið hafi hlotið samþykki byggingarnefndar, skv. ákvæðum 24. greinar reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002. Skipulags- og byggingarráð tók jafnframt undir þá kröfu Heilbrigðiseftirlitsins að hætt verði að nota húsnæðið sem starfsmannabústað og íbúðarhúsnæði og að búsetu verði þá þegar lokið í húsinu. Enn er búseta í húsinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 02.09.2009 eigendum húsnæðisins skylt að ljúka búsetu í húsinu þriggja vikna. Yrði það ekki gert mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa erindinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulags- og byggingarráðs, sem bókaði eftirfarandi 20.10.2009: "Skipulags- og byggingarráð gerir eigendum húsnæðisins skylt að ljúka búsetu í húsinu innan þriggja vikna. Verði það ekki gert mun skipulags- og byggingarráð vísa erindinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997." Eigandi hefur sagt að úrbætur verði gerðar, en ekkert staðfest liggur þar fyrir.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að áður boðaðar dagsektir á Húsaleigu ehf verði kr. 50.000/dag  og verði innheimtar frá og með 1. janúar 2010, hafi búsetu ekki verið lokið fyrir þann tíma, eða fullnægjandi gögn frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og Eldvarnareftirliti verið lögð fram."

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120265 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030051