Bæjarhraun 2, ólögleg búseta.
Bæjarhraun 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 243
19. janúar, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju erindi Guðna Gíslasonar, Hönnunarhúsinu ehf, f.h. Húsfélagsins Bæjarhrauni 2, varðandi ólöglega búsetu í húsinu og breytingar í rýmum 02-03. Gerð var krafa um stöðvun framkvæmda við vask, salerni o.fl. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 19.08.2009 eigendum rýmanna skylt að tæma búsetu í húsinu innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarráð gerði 20.10.2009 eigendum rýmanna skylt að tæma búsetu í húsinu innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við því.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á húseiganda kr. 50.000 á dag frá og með 1. mars 2010 verði búsetu ekki lokið og ólögmætar framkvæmdir fjarlægðar fyrir þann tíma."

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120239 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030026