Melabraut 17, gámur á bílastæði
Melabraut 17
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 225
28. apríl, 2009
Annað
Fyrirspurn
Á bílastæði hússins gegnt Suðurgötu hefur staðið gámur í heilt ár. Haft var samband við húseigendur, Bílamálun Minney, um að fjarlægja gáminn og lofuðu þeir að það yrði ekki bið á því. Gámurinn stendur enn, en samkvæmt deiliskipulagi er það óheimilt. Gámurinn er þarna á ábyrgð húseiganda/lóðarhafa, sem hefur ítrekað verið beðinn um að fjarlægja gáminn, og gert skylt á afgreiðslufundi 27.08.2008 að fjarlægja hann þá þegar. 18.03.2009 gerði skipulags- og byggingarfulltrúi húseiganda/lóðarhafa Melabrautar 17 skylt að fjarlægja umræddan gám innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu innan þess tíma yrði gerð tillaga til skipulags- og byggingarráðs um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga. Ekki hefur verið brugðist við þessu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 08.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir húseiganda skylt að fjarlægja umræddan gám innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir húseiganda skylt að fjarlægja umræddan gám innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121845 → skrá.is
Hnitnúmer: 10036025